Það er ein vika eftir af fyrsta módelnámskeiðinu, það er búið að
vera alveg frábært, rosalega góður hópur!!!
Við erum búnar að fara í ýmislegt en eigum samt slatta eftir.
Búið er að fara með stelpunum yfir það hvernig maður ber sig,
framkomu, fyrirlestrar um tísku helstu hönnuði, hvað er inn og hvað
ekki...
. tókum eitt kvöld með Adda Símonar, held að það standi
uppúr hjá flestum en þar fórum við í hópefli hálfgerða
leiklistaæfinu, þar var í rauninni verið að sigrast á
feimni!!! Stelpurnar voru látnar gera ótúlegustu hluti, búa til
hluti úr þeim sjálfum. t.d örbylgjuofn sem var að poppa poppkorn og
poppið snérist........
unnum að mestu í hópum.
Búnar að æfa mikið að ganga alltaf relgulegar gönguæfingar,
enda koma stelpurnar til með að sýna á tískusýngum og þá
verður að vera búið að fara vel í framkomu a sviði og hvernig á að
bera sig

fengum kynningu á GUINOT húðvörum, stelpurnar fengu
húðgreiningu og fórum svo í förðun. Svo verður hárið
tekið í gegn líka. Eitt kvlöd fórum við niður í vaxtarrækt og tókum
á því þar en stelpurnar fá frítt í ræktina á meðan námskeiðinu
stendur, enda er hreyfing og heilbryggt líferni eitt það
mikilvægasta!! Þar fengu selpurnar líka smá smakk af því að vera í
tískusýningu, og hversu hratt maður þarf stundum að vinna milli
innkoman, en hún fór þannig fram að þær fengu föt frá
hjálpræðishernum og áttu að setja upp flotta sýningu eins og þetta
væri alveg Gala klæðnaður! máttu gera hvað sem er við fötin!!
útkoman var líka alveg frábær.
Í gær var svona selpu-kvöld hja okkur, hittumst allar heima hjá
okkur Svönu og horfðum bachelorinn og ástarfleigið og voum búnar að
útbúa grænmetisbakka, osta, brauð og pesto og alls konar ávexi,
alveg frábær svona til að kynnast enn betur.
Í næstu viku er svo modelmyndatakan, förum í bíó og svo er
restin leyndó.....

Við ætlum að reyna að ná öðru námskeiði fyrir jólin en það kemur
allt í ljós á næstu vikum...